Dæmi um stimpilklukku hreyfingar fyrir febrúar mánuð 2020 í dk+
Stimpilklukkan hefur fjórar grunn stimpiltegundir. Þær eru Vinna, Veikindi, Veikindi barns og Frí.
Hægt er að stofna fleiri stimpiltegundir en tengja þarf þær við Tegund og dk Tegund.
Það er svo að hægt sé að vita dk stimpilklukku megin af hvaða tegund stimplunin er svo að hægt sé að reikna laun út frá því.
Hægt er að taka út skýrslur undir Skýrslu flipanum.
Velja þarf Frá og Til dagsetningar en núverandi mánuður er sjálfvirkt valinn.
Hægt er að velja einn eða fleiri starfsmenn í fellilistanum til að skoða eina stóra skýrslu.
Annaðhvort er hægt að skoða skýrslu eða fá hana senda á netfang viðkomandi sem er innskráður.
Listi stimpiltegunda. Athugið að búið er að stofna stimpiltegundina Vinna að heiman
|
Á síðu stimpilklukku hreyfinga er að finna takkann .
Þar er hægt að senda stimpilklukku færslur úr dk+ kerfinu yfir í dk.
Val er um að senda yfir í dk-stimpilklukku eða dk-verkbókhald.
Athugið að yfirfærsla notast við sama tímabil og valið er til að sía færslur. |
Þegar smellt er á fer af stað vinnsla í bakgrunni sem færir færslurnar yfir og sendir viðkomandi sem framkvæmdi aðgerðina tölvupóst með upplýsingum um fjölda færslna, upplýsingar um hvaða færslur voru sendar yfir, villur og fleira.
Eldra stimpilklukkukerfi er að finna inni í dk forritinu. Ef nota á launakeyrslur í dk á innstimplanir þarf fyrst að færa stimpilklukkufærslur úr dk+ yfir í dk.
Hægt er að færa dk+ stimpilklukkufærslur yfir í verkbókhald í dk ef notast er við verk í stimpilklukkunni. Þá stofnast færsla í verkdagbók starfsmannsins með dagvinnu/yfirvinnu tímum (ef notast er við vinnutíma).
Viðmótið fyrir það að færa færslur.
Búið er að velja að færa yfir í dk-stimpilklukku fyrir alla starfsmenn.