---
title: "Rangt notendanafn vistað í stillingum í RDP skrá"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DF/20381702/Rangt%20notendanafn%20vista%C3%B0%20%C3%AD%20stillingum%20%C3%AD%20RDP%20skr%C3%A1"
format: markdown
---
Þegar tengst er inn í dkvistun með því að tvísmella á desktop icon þá getur verið að notendanafn sem vistað er inn sé rangt. Ef þú vilt breyta því þá er hægt að gera það með því að fara í edit á .rdp skránni sjálfri.

Ef þú notaðir **dkVistun Setup **til að setja upp tenginguna inn í hýsinguna þá er **.rdp **skráin geymd undir AppData í notendaprófílnum.

### Edit

1. Opnið **Windows Explorer** og farið niður í slóðina:  
**C:\Users\%username%\AppData\Roaming\dkVistun\Files\**
2. Hægri smellið á **.rdp **skrána og veljið **Edit**
3. Setjið inn rétt notendanafn undir **User name: **  
Munið að það þarf að hafa **dkvistun\** forskeyti á notendanöfnum.
4. Smellið á **Save**
5. Lokið glugganum

> ✅ Nú getið þið opnað hýsinguna með flýtihnappnum á desktop og sláið svo bara inn lykilorð notandans.