---
title: "Nota fleiri en eitt shortcut til að tengjast með mismunandi notendum"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DF/20676609/Nota%20fleiri%20en%20eitt%20shortcut%20til%20a%C3%B0%20tengjast%20me%C3%B0%20mismunandi%20notendum"
format: markdown
---
> ℹ️ Þegar tengst er inn í vistun þá er notendanafnið oft vistað inn í .rdp skrána svo ekki þurfti að slá það inn við hverja innskráningu. Ef þú þarf að logga þig inn með öðrum notanda, þá er hægt að velja **Other user** en fyrir fleiri en stök skipti getur það verið hvimleitt.

Ef þú notaðir **dkVistun Setup **til að setja upp tenginguna inn í hýsinguna þá er **.rdp **skráin geymd undir AppData í notendaprófílnum.

> ❌ Athugið að það má ekki haka við **Allow me to save credentials** eða eða vista lykilorð þegar spurt er um slíkt því þá mun sama notendanafn notast á öllum tengingum.

### Afrita .RDP skrá yfir á Desktop

1. Opnið **Windows Explorer** og farið niður í slóðina:  
**C:\Users\%username%\AppData\Roaming\dkVistun\Files\**
2. Hægri smellið á **.rdp **skrána og veljið **Copy**
3. Farið inn í **Desktop **möppuna og **Paste’ið **skrána þar
4. Hægti smellið á skrána og veljið **Edit**
5. Setjið inn rétt notendanafn undir **User name: **  
Munið að það þarf að hafa **dkvistun\** forskeyti á notendanöfnum.
6. Smellið á **Save**
7. Lokið glugganum

> ✅ Nú getið þið opnað hýsinguna með .RDP skrá á desktop og sláið svo bara inn lykilorð notandans.

> ℹ️ Ef þið viljið hafa möguleika á fleiri notendum, endurtakið ferlið með fleiri RDP skrám.