---
title: "Notandi þegar loggaður inn í dk"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DF/24281089/Notandi%20%C3%BEegar%20logga%C3%B0ur%20inn%20%C3%AD%20dk"
format: markdown
---
## \uD83E\uDD14 Vandamál

Þú ert að logga þig inn í dk en forritið segir að notandinn sé þegar skráður inn.

> ⚠️ dk notandinn þinn er í notkun í öðrum dk glugga

> ⚠️ dk notandinn getur verið tímabundið læstur í gagnagrunni

## \uD83C\uDF31 Lausn

### dk forritið er opið oftar en einu sinni

> ℹ️ Þú gætir hafa opnað dk með shortcut á skjáborðinu án þess að átta þig á því að dk forritið væri þegar opið. Það eru þá tvö eða fleiri eintök af forritinu í gangi á sama tíma.

> ✅ **Kíktu í Task bar eftir dk forritinu og þá sérðu hversu mörgum sinnum forritið er opið. Lokaðu þeim öllum og prófaðu svo að ræsa það bara einu sinni.**

---

### dk notandinn þinn gæti verið læstur í gagnagrunni

> ℹ️ Ef villa kom upp í kerfinu og dk fraus eða lokaðist þá gæti notandinn verið tímabundinn læstur í gagnagrunni.

1. Lokaðu dk
2. Skráðu þig út úr hýsingunni með **Sign Out** (disconnect er ekki nóg)  
***Timeout fyrir læstan notanda eru 180 sekúndur**
3. Skráðu þig svo aftur inn í hýsinguna eftir að timeout tíminn er liðinn.

---

> ℹ️ ### dk notandi enn loggaður inn í dk
> ℹ️ 
> ℹ️ Ef ekkert gengur að losa notandan á einfaldan máta, þá þarf að hafa samband við **Ráðgjafadeild dk** í síma **510 5800** eða með tölvupósti á [hjalp@dk.is](mailto:hjalp@dk.is)


## \uD83D\uDCCE Related articles



> Macro (contentbylabel)