---
title: "Uppsetning á Thinprint Client"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DF/7733448/Uppsetning%20%C3%A1%20Thinprint%20Client"
format: markdown
---
> ℹ️ Thinprint Client tengir prentarana þína við dkVistun.   
> ℹ️ Passaðu að vera ekki með neinar remote desktop tengingar í gangi við uppsetningu á Thinprint

Nauðsynlegt er fyrir notendur á Windows stýrikerfum að vera með Thinprint client uppsettan til að tengja prentara við dk í hýsingunni. Eftir uppsetningu er hægt að opna stillingarnar en forritið ræsist svo sjálfkrafa þegar opnuð er tenging inn í dkVistun.

### Uppsetning á Thinprint

1. Sækja nýjustu útgáfuna hér  
[https://thinprint.dkvistun.is/13/ThinPrintClientWindows.msi](https://thinprint.dkvistun.is/13/ThinPrintClientWindows.msi)
2. Keyra upp setup forritið.

> ⚠️ Passaðu að vera með engar remote desktop tengingar í gangi við uppsetningu. Thinprint varar þig við, ef þú heldur áfram með tengingu virka þá þarf að endurræsa tölvuna eftir uppsetningu.
> ⚠️ 
> ⚠️ ![tp-rdp running.png](media://47f76e24-3790-49c4-bdca-4354c8eabf7e)

![image-20250408-084211.png](media://5f2c3c60-1f7b-4b31-90d3-ee5a504d95a7)

![image-20250408-084234.png](media://e6700506-8eec-47e7-9d13-47e28db16786)

![image-20250408-084340.png](media://7b801e95-974a-4692-a843-20f0923bfb70)

![image-20250408-084350.png](media://119140aa-40c6-410b-ae9e-2af33c1cac1d)

3. Ef þú ert ekki með administrator réttindi á tölvunni þá getur þú smellt á **Only for me **og forritið klárar uppsetninguna.

![image-20250408-084358.png](media://7a9bf136-4032-4775-88bb-8440433a4b72)

> ✅ Forritið er nú uppsett. Hægt er að opna stillingarnar í gegnum Start Menu á tölvunni. Það ræsist svo sjálfkrafa upp næst þegar þú opnar Remote Desktop tengingu.


### Notkun á Thinprint

![image](media://d09525ee-0196-44f2-8155-f6939152c308)

**Inherit system's default printer **notar sjálfgefinn prentara á tölvunni þinni sem sjálfgefinn prentara inn í dkVistun

**Use this printer** gefur þér val um að hafa einhvern annan en sjálfgefna prentarann á tölvunni þinni sem sjálfgefinn prentara inn í dkVistun

Það á alltaf að vera hakað í **Default at server**

![image](media://c97c14dd-cfe1-4adc-878c-b87536fd7402)

Hér eru ávallt allir prentarar valdir sem eru uppsettir á tölvunni þinni. Þú hefur val um að fækka prentururum sem tengjast inn í dkVistun með því að afhaka við prentara sem þú munt ekki nota í dk.

**Enable sending properties** er valið sjálfkrafa og á ekki að fikta í því nema þú lendir mögulega í vandræðum með útprentun. Með því að fjarlægja hakið nota Thinprint einfaldari útgáfu af prentarauppsetningum inn í dkVistun.  
Fyrir 99% notenda virkar það án vandræða að hafa hakið í.

> ✅ Það er gott að hafa einungis hakað við þá prentara sem þú munt nota í dk því tenging á morgun prenturum getur tafið eilítið tenginguna (15-60 sekúndur)  
> ✅ Svo gerir það líta fólki einfaldara um vik að velja prentara ef það eru ekki margir óþarfa prentarar í listanum.


| **Prentarauppsetning í hýsingu** |
| --- |
|  |

Hér má finna leiðbeiningar um hvernig uppsetning er á sölureikningaprentara: [Uppsetning á sölureikningaprentara](https://desk.dk.is/agent/dkhugbunadur/r%C3%A1%C3%B0gjafadeild/knowledge-base/page?articlestatus=published&showAllArticles=true&rootcategoryId=691274000000187205&categoryId=691274000000187205&status=published#Solutions/dv/691274000004035044/en)  


## Related articles



> Macro (contentbylabel)

  


> Macro (details)
> 
> | **Related issues** |  |
> | --- | --- |