---
title: "Réttindi hópa"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897121/R%C3%A9ttindi%20h%C3%B3pa"
format: markdown
---
Með því að smella á hóp er hægt að breyta þeim réttindum sem sá hópur hefur. 

Grunnstilling á hópi er að eining sé **"Óvirk"**. Til að virkja einingu fyrir þann hóp þarf að smella á stikuna og velja **"Virk"**. Grunneiningarnar koma fram á efri part gluggans. 

Í flipum fyrir neðan er síðan hægt að sérsníða frekar hvað notandi má sjá undir ákveðnum einingum. Til að bæta notendum við í hópa er átt við [Meðlimi hópa](https://dkdocs.atlassian.net/wiki/spaces/DKPLUS/pages/7897123)

> ℹ️ **Dæmi**
> ℹ️ 
> ℹ️ Ef notandi á að sjá Skuldunautalista og Tengiliði er hægt að **"Virkja"** bæði.

> ℹ️ **Dæmi**
> ℹ️ 
> ℹ️ Ef notandi á að sjá Samþykki og Reikninga er hægt að **"Virkja"** bæði.

![image](media://332f7d6b-6a5f-4ed7-8844-2895f3b08b88)


---


Undir flipanum "Tilkynningar" er hægt að breyta hvers lags tilkynningar meðlimir hópsins fá. 

> ℹ️ **Dæmi**
> ℹ️ 
> ℹ️ Yfirmaður vill fá tilkynningu um þegar að notanda hefur verið bætt við í dkPlus. Þá er flipanum **"Notanda boðið"** breytt í **Tölvupóstur**, **SMS **eða **Bæði**.


![image](media://8d85066b-0cde-4c12-ae36-e19f367a906e)


> ℹ️ **Athugið**
> ℹ️ 
> ℹ️ Ef sérsníða þarf valmynd fyrir hluta af notandum er betra að stofna nýjan hóp og sérsníða hann heldur en að eiga við grunnhópa kerfisins.