---
title: "Skoða allt"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897182/Sko%C3%B0a%20allt"
format: markdown
---
Undir Skuldunautar - Skoða allt er listi yfir alla þá skuldunauta sem til eru í kerfinu. 

Með hnappnum **"Valkostir"** er** **hægt að flokka og bæta við dálkum með frekari upplýsingum um skuldunauta.

Hægt er að endurraða listanum með því að smella á dálkinn eða raða eftir ákveðnum dálkum með því að hafa **"Flokkun"** virka undir **"Valkostir"** og draga dálk á stikuna. 

Hægt er að stofna nýjan skuldunaut með því að smella á **"Stofna"** hnappinn efst í hægra horninu, fylla út upplýsingar um skuldunautinn og velja **"Vista".**

![image](media://0a5128c4-7546-4a70-b0e7-14acd6f73729)

Til að skoða skuldunaut eða breyta honum er kennitala skuldunauts valin. Þá opnast [skuldunautaspjaldið.](https://dkdocs.atlassian.net/wiki/spaces/DKPLUS/pages/7897184)