---
title: "Stimpilklukka"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897230/Stimpilklukka"
format: markdown
---
Dæmi um stimpilklukku hreyfingar fyrir febrúar mánuð 2020 í dk+ Yfirlitsmyndir fyrir stimpilklukku. Stimpiltegundir Stimpilklukkan hefur fjórar grunn stimpiltegundir. Þær eru  Vinna ,  Veikindi ,  Veikindi barns  og  Frí. Hægt er að stofna fleiri stimpiltegundir en tengja þarf þær við  Tegund  og  dk Tegund . Það er svo að hægt sé að vita dk stimpilklukku megin af hvaða tegund stimplunin er svo að hægt sé að reikna laun út frá því. Sjálfvirkni  er einnig eiginleiki á stimpiltegund. Hann segir til um hvort eigi að stimpla inn/út sjálfkrafa fyrir þessa stimpiltegund. Sem dæmi myndi starfsmaður sem skráir sig inn veikann verða stimplaður sjálfkrafa út og aftur inn miðað við settann  Vinnutíma . Listi stimpiltegunda. Athugið að búið er að stofna stimpiltegundina  Vinna heima . Skýrslur Hægt er að taka út skýrslur undir Skýrslu flipanum.  Velja þarf  Frá  og  Til  dagsetningar en  núverandi mánuður er sjálfvirkt valinn . Hægt er að velja  einn eða fleiri starfsmenn í fellilistanum  til að skoða eina stóra skýrslu. Annaðhvort er hægt að  skoða  skýrslu eða fá hana  senda á netfang  viðkomandi sem er innskráður.   Viðmót skýrslna. Senda yfir í dk Á síðu stimpilklukku hreyfinga er að finna takkann  . Þar er hægt að senda stimpilklukku færslur úr dk+ kerfinu yfir í dk. Val er um að senda yfir í  dk-stimpilklukku  eða  dk-verkbókhald . Með  dk-verkbókhaldi  stillingunni er einnig hægt að  Senda verkdagbækur sem uppfærðar  sem merkir þær allar sem "uppfærðar" í dk. Athugið Athugið að yfirfærsla notast við sama tímabil og valið er til að sía færslur. Þegar smellt er á   fer af stað vinnsla í bakgrunni sem færir færslurnar yfir og sendir viðkomandi sem framkvæmdi aðgerðina tölvupóst með upplýsingum um fjölda færslna, upplýsingar um hvaða færslur voru sendar yfir, villur og fleira. dk-stimpilklukka Eldra stimpilklukkukerfi er að finna inni í dk forritinu. Ef nota á launakeyrslur í dk á innstimplanir þarf fyrst að færa stimpilklukkufærslur úr dk+ yfir í dk. dk-verkbókhald Hægt er að færa dk+ stimpilklukkufærslur yfir í verkbókhald í dk ef notast er við  verk  í stimpilklukkunni. Þá stofnast færsla í verkdagbók starfsmannsins með dagvinnu/yfirvinnu tímum (ef notast er við  vinnutíma ). Viðmótið fyrir það að færa færslur úr dkPlús yfir í dk. Búið er að velja að færa yfir í  dk-verkdagbók  fyrir  alla starfsmenn  og  öll verk.