---
title: "Uppsetning á Vefþjónustu DK"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897254/Uppsetning%20%C3%A1%20Vef%C3%BEj%C3%B3nustu%20DK"
format: markdown
---
dkPlus notar vefþjónustu til að tala við kjarnann í dk og þarf sú þrónusta að vera uppsett svo að dkPlus geti starfað.

fyrir þá sem eru með þetta hjá sjálfum sér þarf að setja upp vefþjónustuna og stilla af réttindi á miðlaranum.

Sækja uppsetninga skrá [hér](https://www.dkplus.is/fileupload/client/dkPlus%20Client%20Setup.exe)

## Forsendur fyrir uppsetningu

Með uppsetningu kemur viðhaldsforrit sem sér um að uppfæra þjónustuna sjálfkrafa og er skilyrði að .NET 4.2.6 sé uppsett á vefþjóninum.

## Lágmarks kröfur

Erfitt er að setja nákvæma lýsingu þar sem það er mikið háð því hvað annað er uppsett á miðlaranum.  
Ráðlagt er samt að miðlarinn sé tileinkaður einungis sem vefþjónn.  
4x CPU  
4GB Memory

Ef að vefþjónn er uppsettur samhliða Pervasive gagnagrunns vélinni þar að tryggja að nægilegt CPU sé til staðar til að það hafi ekki truflandi áhrif á vikni á dk,dkpos og örðum kerfum sem  
keyra á viðkomandi vél.  
t.d. ef miðlari hefur einungis tvo kjarna mun eitt vefkall taka þá báða það sem 50% CPU fer í vefkallið og 50% í gagnagrunns fyrirspurnina.

## Vefþjónn

- Setja upp þjónustu á vefþjóni
- Gera vefþjón aðgengilegan utan frá(Internet)  
Ráðlagt er að takmarka aðgengi með IP tölu lokunum
- Stofna DNS færslur sem vísar á þjónustuna (Valkvætt)
- Setja SSL skilríki til að nota HTTP (Valkvætt)

## DK

- Stofna notanda (t.d. ws.plus.access)
- Stilla "Hefur Admin Réttindi"
- Uppfæra leyfi eftir að búið er að heimila vefþjónustu dk hugbúnaðar megin



> ℹ️ **Hýsingar aðilar**
> ℹ️ 
> ℹ️ Uppsetninga skrá styður fleiri en eina uppsetningu
> ℹ️ 
> ℹ️ Hægt er að skilgreina heiti á uppsetningu við keyrslu á uppsetninga forritinu
> ℹ️ 
> ℹ️ en einnig hægt að gera með skiptun "dkPlus Client Setup.exe" /newinst /instname CompanyName /qn

## Réttindi

Uppsetninga skráin mun setja réttindi fyrir APP Pool á viðkomandi vél ef að dk uppsetningin er til staðar þar.

Ef vefþjónninn er á domain þá þarf að búa til notanda í viðkomandi domain og stilla vefþjónustuna til að nota þann aðgang til að fá aðgang af gögnum.

Hægt er að stilla af réttindi á APP Pool eða Physical Path Credentials sem er einfladaði leið.

![image](media://ad75ab6b-4539-41da-9086-231c1d032dc4)