---
title: "Stjórnun"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897273/Stj%C3%B3rnun"
format: markdown
---
Undir flipanum  Stjórnun  er hægt að stýra öllu sem tengist tengipuntinum (dk uppsetningunni) sem tengist við dkPlus. Stjórnendur Hægt er að skilgreina tvennskonar stjórnendur Fyrirtækja stjórnandi Hefur réttindi til að gera allt sem tilheyrir því fyrirtæki sem hann er skráður sem stjórnandi hjá t.d. bjóða inn notendum í viðkomandi fyrirtæki í dk+ Tengipunkts stjórnandi Hefur réttindi til að framkvæma aðgerðir á öll fyrirtæki sem tilheyra tengipunktinum. Bæta við notendum í öll fyrirtæki og bæta við fyrirtækjum í dk+ ATH Eingungis tengipunkta stjórnandi sér flipann  Stjórnun . Ekki er hægt að vera tengipunktastjórnandi sé kerfið á sameiginlegu hýsingarsvæði í dkVistun.  Bæta við fyrirtæki Til að bæta við fyrirtæki er smellt á umslagið → notandi valinn og svo fyrirtæki. Ef fyrirtækið er ekki til fyrir í dkPlus verður því samstillt upp í dkPlus. Bjóða inn notanda Til að bjóða inn notanda sem þegar er skilgreindur í dk er smellt á umslagið efst upp í hægra horninu, valið notanda og síðan fyriræki. Athugið að rétt netfang sé valið og smelltu svo á  Bjóða  hnappinn. Viðkomandi fær síðan tölvupóst þar sem hann virkjar aðganginn. Bjóða inn og bæta við notanda Ef að fyrirtæki birtist ekki eftir að búið er að velja notanda þá eru aðgangstakmarkanir virkar í  dk  og þarf að byrja á að heimila aðganginn þar áður en hægt er að bjóða inn í dkPlus Stjórnandi tengipunkts sér sína tengipunkta og fyrirtæki þeirra undir Stjórnun flipanum.