---
title: "Uppsetning hýsingaraðila"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897281/Uppsetning%20h%C3%BDsingara%C3%B0ila"
format: markdown
---
### Upplýsingarnar hér fyrir neðan eru ætlaðar fyrir hýsingaraðila og þá sem hýsa sitt eigið dk Kerfi og vilja fá tengingu við dkPlus. 

Forsendur þess að taka upp vefþjónustu á eigin þjóni er:

- **Stýrikerfi:** Windows 10 eða Windows Server 2016 eða nýrra.   
ATH: Windows 10 hættir stuðningi hjá Microsoft Til October 14, 2025  
Stuðningur við Windows 2012 R2 hætti October 2023
- **Pervasive**: Pervasive Server v11 eða nýrra.

Til að tryggja sem besta upplifun er mikilvægt að þjónn sem hýsir dk og vefþjónustu sé ekki undir of miklu álagi svo að vefþjónusta geti skilað gögnum eðlilega til dkPlus kerfisins. 


> ℹ️ ### Upplýsingar
> ℹ️ 
> ℹ️ Fyrir aðstoð eða upplýsingar hafið samband við dk á [hjalp@dk.is](mailto:hjalp@dk.is)

### 1. Tengipunktur

dkPlus vinnur saman með dk í gegnum svo kallaðan tengipunkt sem settur er upp á vefþjón sem hefur aðgengi að dk gögnunum.  
Þeir sem eru í dkVistun setja þjónustuna ekki upp, þeir einfaldlega sækja um hana á [hjalp@dk.is](mailto:hjalp@dk.is)   
Ef þú sérð um rekstur á dk kerfinu sækir þú uppsetninga forrit [hér](https://www.dkplus.is/fileupload/client/dkPlus%20Client%20Setup.exe)


> ℹ️ ### Uppsetninga skráin gerir eftirfarandi
> ℹ️ 
> ℹ️ - Stillir af vefþjón
> ℹ️ - Stillir af vefsvæði
> ℹ️ - Setur upp vefþjónustuna
> ℹ️ - Stillir af keyslu þjónustu á vefþjóni
> ℹ️ - Leitar af dk uppsetningu og stillir réttindi ef hún finnst
> ℹ️ - Stillir af sjálfvirka uppfærslu á þjónustum


> ℹ️ ### IIS
> ℹ️ 
> ℹ️ Mælum með að nota port **443 **fyrir samskipti og einnig vera með DNS færslu t.d. dkws.mittfyrirtaeki.is
> ℹ️ 
> ℹ️ Hægt er að nota eigin skilríki til að tryggja SSL örugg samskipti eða nota t.d. LetsEncrypt til að sjá um skilríkja mál sem sér um sjálfvirka endurnýjun en þá þarf port **80 **einnig að vera opið og má ekki vera ip tölu takmarkanir í gangi.
> ℹ️ 
> ℹ️ [Certify The Web - simple free certificates for IIS and more, powered by Let's Encrypt and other ACME CAs](https://certifytheweb.com/)


### 2. Kerfis notandi

ATH Sleppa ef aðgangstakmarkanir eru ekki í notkun

#### Aðgangstakmarkanir / fyrirtækjahópar

Ef leyfi er fyrir aðgangstakmörkunum og eru virkar þá þarf að byrja á að stilla þá af til að heimila tengingu

Eftir að uppsetningu er lokið þarf að stofna notanda í DK sem mun sjá um samskiptin gegnum vefþjónustuna.  
  


<details>
<summary>Opna þarf DK og skrá inn sem "Admin" notandinn. </summary>

- Fara í Almennt → Umsjón → Notendur
- Smella á "Stofna"
- Setja notandanafn t.d. ws.plus.usr og setja á hann lykilorð
- Undir réttindi skal haka við "Hefur admin réttindi" og svo vista
- Opna nýtt tilvik af DK og skrá inn ný stofnaða notandann.
- Fara í Skrá → Fyrirtæki → Listi og velja fyrirtæki til að grunn stilla notanda á.
- Setja notanda í réttan fyrirtækja hóp Almennt->Umsjón→Fyrirtækjahópar
</details>


### **3. Upplýsingar sendar til dk**

- Til að hefja uppsetningu dkPlus megin þarf að senda póst á [hjalp@dk.is](mailto:hjalp@dk.is) og biðja um uppsetningu á dkPlus.
- Mikilvægt er að hafa skráðan tengilið sem staðfestir að setja megi upp kerfið.
- Senda þarf með notandanafn,lykilorð og slóð á þjónustu (URL).
  - *Dæmi admin / dk / **[https://fyrirtaeki.is/dkPlusBase/dkWSItemsCGI.exe](https://fyrirtaeki.is/dkPlusBase/dkWSItemsCGI.exe)*
  - *Dæmi ws.dkplus.usr / Tengja1kerfi / **[https://fyrirtaeki.is/dkPlusBase/dkWSItemsCGI.exe](https://fyrirtaeki.is/dkPlusBase/dkWSItemsCGI.exe)*


### IP takmarkanir

> Hjá fyrirtækjum sem reka sín eigin kerfi og vilja takmarka að vefþjónustan sé ekki aðgengileg almennt á internetinu þá er hægt að opna einungis fyrir eftirfarandi IP tölu mengi:   
>   
> * Allar dkPlus þjónustur : **149.126.83.70/32**  
> eða (Ef það þarf víðari opnanir)  
> * Allar dk þjónustur : **149.126.83.0/25**


> ⚠️ Til að nota dkPlús þurfa þeir sem hýsa kerfið sjálfir að tryggja reglulegt viðhald og uppfærslur á dk Kerfinu. Almennt er mælt með að uppfærslan sé ekki eldri en 365 daga. Ábyrgðin á viðhaldi kerfisins liggur hjá hýsingaraðila, hvort sem það er dkVistun, annar hýsingaraðili eða viðskiptavinurinn sjálfur.  
> ⚠️ Núverandi úgáfa af dk 5.1.0+