---
title: "Stimpilklukku vefsíða"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897304/Stimpilklukku%20vefs%C3%AD%C3%B0a"
format: markdown
---
Útlit á stimpilklukkusíðu (fyrir demo fyrirtækið Unit ehf) Dálkar Stimpilklukkan sýnir þrjá dálka;  Innstimplun ,  Innskráðir  og  Útskráðir .  Innskráðir Sýnir lista af þeim starfsmönnum sem eru skráðir inn. Þar birtast einnig upplýsingar eins og Athugasemd, Verkheiti og verknúmer, tegund stimplunar, dagsetning og tími innstimplunar. Útskráðir  Sýnir lista af þeim starfsmönnum sem eru útskráðir. Í þeim lista birtist aðeins nafn og mynd.  Athugið Ef búið er að tengja netfang við starfsmanninn mun verða uppfletting með  Gravatar  til að reyna finna mynd til að sýna. Mynd þeirra starfsmanna sem hafa tengt netfang sitt í gegnum Gravatar mun því verða sýnileg á  Innskráðir/Útskráðir  listanum. Hjalti er skráður inn á verk og hefur sett Athugasemd  Ágúst er ekki skráður inn á verk og hefur aðeins skráð Athugasemd. Innstimplunar gluggi þar sem  Athugasemd   er eini valkosturinn umfram tegund stimplunar. Innstimplunar gluggi þar sem Verk hefur verið gert  skilyrt  (í stillingum)  en Athugasemd og Verkþáttur eru valkvæðir reitir. Stimplanir Þegar stimplun hefur átt sér stað birtast skilaboð  uppi í hægra horni  sem gefur til kynna hvort stimplun hafi tekist (inn og út stimplanir) eða villa hafi komið upp. Starfsmaður var stimplaður inn á verk. Starfsmaður var stimplaður út. Ógilt starfsmannanúmer hefur verið slegið inn.