---
title: "Lén fyrir stimpilklukku stofnað"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897329/L%C3%A9n%20fyrir%20stimpilklukku%20stofna%C3%B0"
format: markdown
---
Þegar stimpilklukka er  virk  þá birtist  Stimpilklukku dálkurinn á hliðarstikunni  fyrir stjórnendur fyrirtækisins og fyrir þá sem hafa  réttindi  til að sjá hann. Til þess að virkja stimpilklukku fyrir þitt fyrirtæki þarf að vera búið að gera nokkra hluti. Stimpilklukka í dk+ stendur ein og sér fyrir utan  dk-stimpilklukkuna . Hægt er að færa færslur á milli þessara kerfa en einnig er hægt að færa yfir í verkbókhald. Bæta við léni Ef virkja á stimpilklukku þarf fyrst að velja nafn á léni. Á síðunni  Umsjón/Yfirlit  er að finna flipann  Síður . Þar er hægt að stofna lén með forskriftina  <nafn>. work.dkplus.is .  Eftir að lénið hefur verið stofnað er hægt að benda á vefslóðina úr öðru léni. Hér hafa nokkur lén verið skráð. Stilla lén Eftir að  lén  hefur verið stofnað er hægt að eiga við stillingar léns. Með því að smella á heiti lénsins undir  Síður  svæðinu opnast upp gluggi með stillingum. Deildir Ef fyrirtæki notast við  Deildir  er hægt að takmarka lénið við ákveðna deild. Ef deild er valin munu allar stimplanir frá því léni sjálfkrafa fá þá deild. IP-tölu takmarkanir Ef takmarka á aðgang fyrir utanákomandi fyrirspurnir er það í boði. Notast við  CIDR . Hægt er að bæta við mörgum IP-tölum einfaldlega með því að hafa hverja IP-tölu í nýrri línu. Til að sjá töluna sem þú ert að koma frá getur þú farið á  https://www.myip.is Valkostir Undir valkostum er að finna ýmislegar stillingar: Tungumál : Segir til um á hvaða tungumál er notað á léninu. Verkleit virk: Segir til um hvort felligluggi birtist með leit í verkum við innstimplanir (ef notast er við verk). Innstimplun falin: Segir til um hvort fela eigi starfsmanna númer þegar það er slegið inn (eins og gert er með lykilorð).   Stillingar gluggi fyrir ákveðið lén.