---
title: "Virkni"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897349/Virkni"
format: markdown
---
Þegar búið er að  setja upp  innlestur reikninga þá hefur dkPlús aðgang í að lesa úr og skrifa í pósthólfið en einnig að stofna möppur. Það sem ber að hafa í huga Þegar skeyti inniheldur fleiri en eitt viðhengi (t.d tvö .pdf skjöl) þá stofnar dkplús reikning fyrir hvert viðhengi. Innlestur úr pósthólfum á sér stað  á 15 mín fresti , þ.e 10:00, 10:15, 10:30 o.s.frv. Inbox má ekki innihalda fleiri en  150  skeyti þegar innlestur hefst. Þegar þetta gerist þá er best að færa öll skeyti úr Inbox yfir í möppu og týna inn 150 í einu. Ef að innlestur nær ekki að greina lánardrottinn með  reglu  eða úr viðhengi fer reikningurinn á  sjálfgefinn lánardrottinn . Staðsetning skjala Hægt er að leiðbeina hvar skjöl skulu liggja og er nauðsynlegt að þau liggi á miðlægu svæði þar sem dkPlus kerfið getur haft aðgengi í þau til að birta notendur Sjá nánar   Staðsetning á fylgiskjölum (Mynd 1) Skýringarmynd af innlestri reikninga (vMail) Leyfðar skrár Þær skráarendingar sem vMail styður eru eftirfarandi: .rtf .doc .docx .pdf .mht .odt .xml .epub .html .htm Þegar viðhengi eru skönnuð er eftirfarandi skráð á reikninginn: Dagsetning Eindagi Reikningsnúmer Upphæð Gjaldmiðill Einnig ef  Gjaldalykill  er skráður á Lánardrottinn er lína sjálfkrafa stofnuð og skráð eru:  Upphæð Lykill Texti Dim1 Dim2 (Mynd 2) Pósthólf þar sem dkplús hefur stofnað vMail möppur. Möppur Möppur sem vMail stofnar eru: vMail  - yfirmappa     Processed  - Skeyti sem hafa verið lesin og stofnaður hefur verið reikningur í dk/dkplús.    Duplicate  - Skeyti (eða m.ö.o reikningar) sem eftir innlestur komu í ljós að voru  nú þegar til í kerfinu  (sama reikningsnúmer og lánardrottinn).    FileSizeExceeded   - Skeyti sem voru of stór eða innihalda viðhengi  stærri en   15MB .    Error   - Skeyti sem  lenda á villu .