---
title: "Breytingar 24. mars 2021"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897351/Breytingar%2024.%20mars%202021"
format: markdown
---
Þann **24. mars 2021** tekur við breyting á innlestri lánardrottnareikninga (vMail) þar sem hann fer **einungis að notast við IMAP samskiptaregluna**.

Áður fyrr notaðist vMail við svokallaða **POP3 **samskiptareglu til að lesa úr pósthólfum. Í einföldu máli þá styður hún aðeins að lesa úr pósthólfi en ekki að stofna möppur og að færa skeyti á milli þeirra.

Breytingin gerir okkur kleift að **stofna möppur innan pósthólfins** og **færa skeyti í möppur**. Þetta hjálpar til dæmis við:

- þegar villa verður við innlestur þá færum við skeytið í “**Error**” möppu innan pósthólfsins og send er tilkynning.
- fyrir þá sem vilja sjá þau skeyti sem hafa komið í pósthólfið - þá færast öll lesin skeyti í “**Processed**” möppu.

Hægt er að sjá meira um möppur undir [Virkni](https://dkdocs.atlassian.net/wiki/spaces/DKPLUS/pages/7897349) → Möppur.

> ❌ **Mikilvægt**
> ❌ 
> ❌ Til að vMail virki sem skyldi þarf að ganga úr skugga um að **IMAP **samskiptareglan sé virk hjá póstþjónustunni sem notuð er (Office365, Gmail, dkVistun, eða annað).

<u>Í flestum tilfellum þarf að hafa samband við hýsingaraðila tölvupóstsins hjá fyrirtækinu. </u>  
<u>Í öðrum tilfellum gæti þurft að skrá sig inn á pósthólfið og virka IMAP þar undir stillingum.</u>

Leiðbeiningar fyrir hýsingaraðila (Microsoft Exchange): [Leiðbeiningar](https://docs.microsoft.com/en-us/exchange/clients/pop3-and-imap4/configure-imap4?view=exchserver-2019)

> ℹ️ **Athugið**
> ℹ️ 
> ℹ️ Við **mælum ekki með að nota Gmail með vMail** þar sem IMAP innlestur virkar illa hjá Gmail. [IMAP leiðbeiningar fyrir Gmail](https://support.google.com/mail/answer/7126229?hl=en).

Einnig verða sjálfvirkir póstar sendir á **netföng** **tilkynninga **(eða stjórnendur) þegar villur eiga sér stað. 


*Póstur var sendur þann ****24. mars 2021 ****á þau fyrirtæki þar sem pósthólf þeirra var ekki hægt að tengja með IMAP samskiptareglunni.*