---
title: "dkPlús Pósthólf"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897386/dkPl%C3%BAs%20P%C3%B3sth%C3%B3lf"
format: markdown
---
Öll fyrirtæki í dkPlús hafa sitt eigið pósthólf og er það virkt. Hægt er að sjá póstfang fyrir viðkomandi undir  Lánardrottnar → Stillingar  eða undir  Uppsetning → Stjórnun . Stillingar Til að fá pósthólf viðeigandi fyrirtækis er farið á síðu fyrir  Lánardrottna , smellt á  Stillingar  (uppi í hægra horni) og þar undir  Auðkenning  flipanum er takki þar sem hægt að afrita pósthólfið: Einnig er hægt að fara undir  Uppsetning →  Stjórnun   og smella á fyrirtækið og  afrita  auðkenni fyrirtækisins þar undir  Lánardrottna pósthólf (vMail) . Áframsending Hægt er að stilla á áframsendingu á tölvupósti úr hinum og þessu póstþjónum og skal leitast við leiðbeiningar á notandahandbækur fyrir viðkomandi póstþjóna. Hér eru leiðbeiningar fyrir algenga póstþjóna O365 / Exchange áframsending GMail áframsending Virkjun Þar sem öll fyrirtæki eru með hólf þá eru þau sjálfkrafa virk til að taka á móti lánardrottna reikningum í gegnum pósthólfið. Ef gamla leiðin er virk og það berst póstur í nýja hólfið þá sjálfkrafa er gamla leiðin óvirkjuð og hætt að reyna að tengjast við það til að sækja póst.