---
title: "Breytingar 1. mars 2024"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DKPLUS/7897420/Breytingar%201.%20mars%202024"
format: markdown
---
Þann **1. mars 2024** mun innlestur úr [eigin pósthólfi](https://dkdocs.atlassian.net/wiki/pages/createpage.action?spaceKey=dkplus&title=Eigi%C3%B0%20p%C3%B3sth%C3%B3lf&linkCreation=true&fromPageId=7897420) vera gerður óvirkur og munu notendur þurfa að vera búnir að tengja áframsendingu á [dkPlús pósthólf](https://dkdocs.atlassian.net/wiki/spaces/DKPLUS/pages/7897386) fyrir þann tíma.

  


Til að virkja áframsendingu þarf að notandi eða hýsingaraðili að gera eftirfarandi:

1. Skrá sig inn á pósthólfið ykkar (t.d reikningar@fyrirtæki.is)
2. Virkja áframsendingu (e. mail forwarding) á **<auðkenni>@dkplus.is** pósthólfið sem fengið var í tölvupósti.
3. *(Á aðeins við um Gmail) *Beðið er eftir staðfestingarpósti (ath. mynd til hægri) um að virkja áframsendingu.   
Smella þarf á hlekk sem kemur frá ***no-reply@dkplus.is ***sem leyfir áframsendingu fyrir pósthólfið.
4. Innlestur úr pósthólfinu verður virkur um leið og fyrsti póstur berst með áframsendingunni, meira þarf ekki að gera til að virkja innlestur.

  
Þegar áframsendingu hefur verið komið á og búið er að senda fyrsta póstinn yfir er hægt að skoða þá á vefslóðinni:

[https://www.dkplus.is/admin/company/mailclient](https://www.dkplus.is/admin/company/mailclient) 

  


  


![image](media://fe10d27e-1b82-48ce-b804-d0fefdc28a14)

*Dæmi um staðfestingarpóst frá Gmail*