---
title: "Aðalsíða"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DMP/8042446/A%C3%B0als%C3%AD%C3%B0a"
format: markdown
---
Þegar notandi hefur skráð sig inn á **Mínar síður** lendir hann á aðalsíðu.

## Reikningar

Á aðalsíðunni er að finna töflu með reikningum viðskiptavinar. 

![image2022-7-6_9-34-46.png]()

### **- Dálkar**

Hægt er að raða/hliðra dálkum með því að draga þá til hliðar eða smella á til að raða eftir stafrófsröð eða stærðarröð.

### - **Reikningslínur**

Ef að smellt er á plúsinn ➕ á línu er hægt að sjá línur á reikningi og verkhreyfingar ef notast er við það í dk.

### **- Viðhengi**

Hægt er að smella á **bréfaklemmuna** til að sjá lista af viðhengjum á þessum reikningi. Einnig er hægt að **skoða sjálfan reikninginn **með því að smella á **stækkunarglerið** eða senda sér reikninginn í tölvupósti með því að smella á **póstkortið**.

## Skuldastaða

Uppi í hægra horni er að finna upplýsingar um skuldastöðu sína við fyrirtækið. Skuldastaða í mínus (táknuð með rauðum) merkir að viðeigandi eigi eftir að greiða þá upphæð til lánardrottins.

## Hreyfingar

Ef að smellt er á **Hreyfingar **takkann, flettist yfir á hreyfingar yfirlitið. Þar birtast tveir nýjir takkar:

![image2022-7-6_10-46-56.png]()


### - Senda **hreyfingaryfirlit **

Þegar smellt er á **Senda hreyfingaryfirlit** á aðalsíðu (eftir að smellt er á **Hreyfingar**) kemur upp gluggi eins og á mynd 3  
Hægt er að senda á marga í einu með því að slá inn semikommu ( ; ) eftir hvert netfang sem slegið er inn. Sama virkar með **CC** og **BCC**. Ef að viðkomandi vill senda **skilaboð **með hreyfingarlista þá er það hægt. Einnig þarf að velja tímabilið sem hreyfingaryfirlit á að sýna með **Dags. til **og **Dags. frá**.

![image2022-7-6_11-58-42.png](media://2eb93367-decd-4962-8240-702469f5786c)

Þegar búið er að senda viðhengi á einn eða fleiri, geta liðið nokkrar mínútur þar til skilaboðin berast (fer eftir álagi). Móttakandinn fær tölvupóst eins og þennan á [Mynd 4](https://dkdocs.atlassian.net/wiki/download/attachments/8042446/image2022-7-8_8-32-23.png?version=1&modificationDate=1657269143380&cacheVersion=1&api=v2) og viðhengi með nafninu "Hreyfingar - <kennitala>.pdf".

![image2022-7-8_8-32-23.png]()

### - Skoða **pdf**

Opnar hreyfingaryfirlit ársins í vafra til skoðunar.

##