---
title: "Útlit uppsetning"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DMP/8042469/%C3%9Atlit%20uppsetning"
format: markdown
---
Þegar stilla á útlit síðunnar, þ.e dálkaröðun, liti síðunnar og fleira er hægt að smella á skjöldinn uppi í vinstra horni. Athugið Notandi þarf að vera  fyrirtækja stjórnandi  í dkPlús  til að skjöldurinn birtist. Eins þarf fyrirtækjastjórnandi að bjóða sér inn í einn skuldunaut til að geta skráð sig inn á Mínar Síður til að breyta þessum stillingum. Mynd 1. Aðalsíða. Dálkauppsetning Stjórnandi  getur breytt hvaða dálkar eru sýnilegir á Mínum Síðum og líka uppröðun þeirra. Til að velja þá dálka sem eiga að vera sýnilegir þarf að haka í kassann við hliðina dálkaheitum. Þegar búið er að því er hægt að breyta uppröðun í lista fyrir ofan með því að smella á dálk og draga hann til hægri eða vinstri þar til ör birtist. Endursetja dálka:  Til að endursetja dálka val og uppsetningu er hægt að smella á  Endursetja dálka  sem mun yfirskrifa uppsetningu með grunn stillingum eins og þegar Mínar Síður voru stofnaðar. Mynd 2. Stjórnanda stillingar - dálkauppsetning. Þema stillingar Undir flipanum  Þema stillingar  eru að finna nokkrar stillingar yfir liti sem breyta síðunni í rauntíma þegar gildum þeirra er breytt. Texti í haus:  Breytir litnum á texta í haus (Skjöldur, viðskiptavinur og tannhjól). Aðallitur síðu:  Breytir litnum á hausnum á síðunni, dálkum á töflum, blaðsíðu flettir á töflum og fleira. Auka litur:  Hefur áhrif á fletti valmyndir og annað. Jákvætt:  Litur á "jákvæðum" hlutum eins og full  greiddur reikningur  eða skilaboð þegar eitthvað "tókst" í kerfinu. Neikvætt:  Litur á "neikvæðum" hlutum eins og  ógreiddur reikningur  eða skilaboð þegar eitthvað "tókst ekki" í kerfinu. Viðvörun:  Litur á  viðvörunar skilaboðum í kerfinu. Upplýsingar:  Litur á viðhengjum undir Mín Skjöl og ýmsir takkar fyrir aðgerðir. Mynd 3. Stjórnanda stillingar - Þema.