---
title: "Stillingar síðu"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DMP/8042578/Stillingar%20s%C3%AD%C3%B0u"
format: markdown
---
Hægt er að stilla ákveðið lén með því að  smella á lénið  þegar búið er að stofna það. Síða Titill:  Sá titill sem notast er við á síðunni til merkis um fyrirtækið (oftast fyrirtækjaheitið). Tungumál:  Sjálfvirka tungumálið sem notast er við á síðunni  (notandi getur skipt á milli Ensku og Íslensku á síðunni sjálfur þrátt fyrir þessa stillingu). Lógó:  Lógóið sem sýnilegt er á innskráningarsíðunni. Takmarkanir Hér er hægt að virkja/óvirkja hluti fyrir notandanum á síðunni. Reikningar:  Ef hakað er í þetta geta notendur sent sér reikninga í tölvupósti á PDF formi. Hreyfingar:  Ef hakað er í þetta geta notendur sent sér og öðrum hreyfingaryfirlit í tölvupósti á PDF formi. Þema Þessar stillingar eru til þess að stilla útlit tölvupósta fyrir boð og annað sem kemur frá Mínum Síðum. Lógó í haus:  Vefslóð á mynd sem sýnd er efst í tölvupósti (oftast lógó fyrirtækisins). Mynd ætti  mest að hafa hlutföllin 300x100 . Titill í haus:  Texti sem sýndur er í haus á tölvupósti (oftast nafn fyrirtækisins). Litur á haus:  Litur texta (t.d Titill í haus) sem er í haus á tölvupóstum. Grunnlitur:  Liturinn sem er notaður á takka og hlekki í tölvupóstum. Bakgrunnslitur í haus:  Bakgrunnsliturinn á hausnum í tölvupóstum. Texti í fæti:  Textinn sem birtist í fæti á tölvupóstum. Undirtexti:  Sjálfgefinn texti sem birtist á milli Kveðju texti:  Kveðju texti sem birtist á tölvupóstum (t.d Kær kveðja,) Kveðja frá:  Frá hverjum kveðjan er (t.d Fyrirtæki ehf.) Texti á hnappi:  Textinn sem birtist á takkanum þegar verið er að samþykkja boð á Mínar Síður.  (Yfirskrifað sem "Samþykkja boð")  Prófa  hnappurinn sendir prufu tölvupóst á netfang notandans sem skráður er inn.  Athugið Það getur tekið frá 0 til 15 mínútur fyrir slíkan prufu-tölvupóst að berast (fer eftir álagi). Dæmi um breytta þemu fyrir tölvupóst: Þegar smellt er á  Prófa  fær viðkomandi þennan tölvupóst: