---
title: "Notandastillingar"
canonical: "https://docs.dk.is/space/DMP/8043086/Notandastillingar"
format: markdown
---
# Tungumál

Hægt er að breyta um tungumál (Íslenska eða Enska) með því að smella á tannhjól uppi í hægra horni (sjá [Mynd 1](/wiki/download/attachments/8043086/image2022-7-8_9-24-32.png?version=1&modificationDate=1657272272443&cacheVersion=1&api=v2))  
eða í innskráningar ferli (sjá [Mynd 2](/wiki/download/attachments/8043086/image2022-7-8_9-13-6.png?version=1&modificationDate=1657271586627&cacheVersion=1&api=v2), niðri hægra megin).

![image2022-7-8_9-24-32.png](media://20b12f25-7277-41f4-bdc8-c51ab6a19c4b)

![image](media://90e138de-511f-48b7-850e-dd1a38b5b97c)

# Stillingar

## Aðgangsupplýsingar

Notandi getur breytt nafni sínu með því að smella á tannhjólið uppi í hægra horni og smella á **Stillingar → Aðgangsupplýsingar** (sjá [Mynd 3](/wiki/download/attachments/8043086/image2022-7-8_9-19-55.png?version=1&modificationDate=1657271995863&cacheVersion=1&api=v2)). Þar er einnig hægt að setja eða breyta símanúmeri sem hægt er að nota til að skrá sig inn með kóða sem sendur er í símann.

![image](media://d3c53166-be38-46dd-8004-0a1f8fd49110)

---

## Breyta lykilorði

Ef notandi þarf að breyta lykilorði er það hægt með því að smella á tannhjólið og smella á **Stillingar → Breyta** lykilorði.   
Þar er hægt að finna gluggann **Breyta lykilorði** (sjá [Mynd 4](/wiki/download/attachments/8043086/image2022-7-8_9-21-16.png?version=1&modificationDate=1657272076650&cacheVersion=1&api=v2)).

![image](media://16659bff-594c-4d56-9477-9fd754ba8f95)

---

## Gleymt lykilorð

Ef notandi hefur gleymt lykilorði sínu er hægt að smella á **Gleymt lykilorð? **á innskráningarsíðunni (sjá [Mynd 2](/wiki/download/attachments/8043086/image2022-7-8_9-13-6.png?version=1&modificationDate=1657271586627&cacheVersion=1&api=v2)). Þegar búið er að smella er notandi færður á síðu (sjá [Mynd 5](/wiki/download/attachments/8043086/image2022-7-8_9-48-40.png?version=1&modificationDate=1657273720097&cacheVersion=1&api=v2)) og hægt er að hefja endursetningar ferli með annaðhvort netfangi eða símanúmeri.

![9704b83e-c577-496b-88ba-471b77b90adf.png](media://ed765792-0846-4324-aaed-3ad584b1c8da)