---
title: "1.4. Skýrslur"
canonical: "https://docs.dk.is/space/F1/8028190/1.4.%20Sk%C3%BDrslur"
format: markdown
---
dk býður upp á ýmsar útskriftir á bókhaldsgögnum, út frá breytilegum valforsendum. Þegar valin er ákveðin skýrsla kemur upp valgluggi þar sem slá má inn ýmsar afmarkanir, svo sem bókhaldslykil, fylgiskjal og dagsetningu. Undir flipanum Valkostir eru frekari  möguleikar varðandi valda skýrslu og undir flipanum Röðun er hægt að velja um í  hvaða röð færslur raðast í skýrslunni.  

Í afmörkunarreitum má nota tvö hjálpartákn. Þau eru ! og *. Um þau gildir eftirfarandi: ! er notað til að sleppa liðum og * ef taka á allt.  

Dæmi:  

!1000  táknar allt nema 1000  

1000..6999,!4000..4999 táknar allt á bilinu 1000 til 3999 og 5000 til 6999.   

100*  táknar allt sem byrjar á 100  

!150*  táknar allt nema það sem byrjar á 150.
  

Allar skýrslur má prenta á prentara eða skjá.  Ef skýrsla er prentuð á skjá þá má síðan prenta hana á prentara með því að smella á prentara hnappinn. Flestar skýrslur má senda yfir í Excel, senda með tölvupósti eða prenta út í skrá á html formati.  Fletta má yfir á næstu síðu eða fyrri síðu með því að smella á hnappinn ör til hægri eða ör til vinstri eða Page Up eða Page Down hnappinn á lyklaborðinu.