---
title: "1.5.3 Rafræn virðisaukaskattskýrsla"
canonical: "https://docs.dk.is/space/F1/8028232/1.5.3%20Rafr%C3%A6n%20vir%C3%B0isaukaskattsk%C3%BDrsla"
format: markdown
---
Með dk fjárhagsbókhaldi er hægt að senda virðisaukaskattsskýrslur rafrænt til skattstjóra. Til þess að það geti orðið þarf notandi að tengja veflykil sem Ríkisskattstjóri úthlutar við virðisaukaskattsuppjörið í dk. Það er gert undir liðnum **Uppsetning** og valinn er flipinn **Rafræn vsk. Skýrsla**. Þegar því er lokið er ekkert að vanbúnaði við að senda virðisaukaskattsskýrslurnar rafrænt til RSK.  

Þegar virðisaukaskatturinn er tilbúin er valið að senda skýrsluna rafrænt með því að velja úr aðalvalmyndinni **Rafræn virðisaukaskattsskýrsla** og þá opnast glugginn hér að ofan. Þarna er valið að sækja VSK númer frá RSK og þá sækir kerfið þær upphæðir sem skráðar eru á vsk. númer fyrirtækisins og setur upp á skjá. Þegar notandi heldur áfram er skýrslan send inn til RSK og þaðan til greiðslu á bankalínu fyrirtækisins. Að lokum er boðið uppá að bóka vsk. uppgjörið í dagbók. Þessa dagbók þarf síðan að yfirfara, prenta og uppfæra.