---
title: "1.5.6 Aðrar skýrslur"
canonical: "https://docs.dk.is/space/F1/8028240/1.5.6%20A%C3%B0rar%20sk%C3%BDrslur"
format: markdown
---
Hér er hægt að prenta út ýmsar sundurliðanir á virðisaukaskattinn, annars vegar samtölur og hins vegar sundurliðað á hreyfingar. Þessar skýrslur eru gagnlegar til að ganga úr skugga um að virðisaukaskattsskýrslan sé rétt. Eins má prenta út ársyfirlit yfir virðisaukaskattinn sem er sambærilegt við eyðublöð RSK 10.25 og RSK 10.26 frá ríkisskattstjóra.  

Virðisaukaskattsskýrsluna sjálfa má prenta út eins oft og þurfa þykir, m.a. til að fylgjast með því hvernig staða virðisaukaskattsins þróast á tímabilinu. Einnig má taka út skýrsluna aftur í tímann, eða eftir að búið er að bóka virðisaukaskattstímabilið.  

Þegar búið er að bóka virðisaukaskattstímabilið, þ.e. búið að gera upp tímabilið, er staða inn- og útskattsbókhaldslyklana (þ.e. þá bókhaldslykla sem safna virðisaukaskattsfærslum) á núlli í lok tímabilsins.