---
title: "1.6 Fjárhagsáætlun"
canonical: "https://docs.dk.is/space/F1/8028258/1.6%20Fj%C3%A1rhags%C3%A1%C3%A6tlun"
format: markdown
---
Fjárhagsáætlun má setja upp fyrir hvert bókhaldstímabil. Setja má upp allt að fjögur áætlunarlíkön fyrir hvert bókhaldstímabil. Síðan má velja um hversu djúpt á að fara í að setja inn fjárhagsáætlun. Velja má áætlunarstig sem stjórnar því hversu djúpt er farið við að skrá inn áætlun. Í áætlunarstig má velja: "Samtölulykla" eða "Bókhaldslykla". Áætlunin er síðan slegin inn á hvern mánuð, ársfjórðung, hálft ár eða ár.