---
title: "1.7 Bankareikningar"
canonical: "https://docs.dk.is/space/F1/8028276/1.7%20Bankareikningar"
format: markdown
---
Bankareikningar er öflugt afstemmingarkerfi í dk, en þar er hægt að sækja bankahreyfingar fyrir alla þá bankareikninga sem fyrirtæki eru með, bæði bankareikninga í ISK og í erlendri mynt, í hvaða banka sem er. Einnig er hægt að stemma af aðra bókhaldslykla án bankahreyfinga og á það við um bókhaldslykla fyrir t.d. ógr. laun, kreditkort, lán o.fl.  

Byrjað er á því að stofna þá bankareikninga sem á að sækja bankahreyfingar fyrir, en þar er einnig hægt að stofna þá reikninga sem á að afstemma án bankahreyfinga.