---
title: "1.7.6 Uppsetning"
canonical: "https://docs.dk.is/space/F1/8028286/1.7.6%20Uppsetning"
format: markdown
---
Þegar smellt er á **Textalyklar** undir uppsetningu úr aðalvalmyndinni þá opnast listi yfir þá textalykla sem hægt er að nota í bankakerfinu. Þar fyrir neðan er hægt velja **Bókunaruppsetning textalykla**, þar sem hægt er að tengja textalykla við ákveðinn bókhaldslykil. Einnig er hægt að setja inn deild, verkefni og viðfangsefni. Þegar sóttar eru hreyfingar í bankaafstemminguna og ef viðkomandi textalykil er að finna á bankahreyfingu, þá merkir hún færsluna miðað við bókunaruppsetninguna.  

**Almennar stillingar** bjóða uppá að velja fylgiskjalaseríu fyrir þær dagbækur sem stofnaðar eru í bankareikningavinnslunum . Athugið að ef sér fylgiskjalasería er valin fá allar færslur í viðkomandi dagbók sama fylgiskjalsnúmer.