---
title: "1.12.8 Skráning á stöðum"
canonical: "https://docs.dk.is/space/F1/8028374/1.12.8%20Skr%C3%A1ning%20%C3%A1%20st%C3%B6%C3%B0um"
format: markdown
---
Í upphafi þarf að skrá inn upphafsstöður á eignareikninga (færsla höfuðbókar). Þessa skráningu má framkvæma í raun hvenær sem er, þ.e. ekki er nauðsynlegt að framkvæma hana áður en byrjað er að færa hefðbundnar færslur, því oft liggja þessar stöður ekki allar fyrir um áramót.  Þetta er einungis gert í fyrsta sinn (í upphafi rekstrar), eftir það er staðan flutt milli ára með sérstakri aðgerð/vinnslu sem heitir Opnunarstöður.  Hér má einnig skrá inn saldó tölur fyrri ára til að nota sem samanburð í greiningarvinnslum og skýrslum.