---
title: "Mín skráning"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897445/M%C3%ADn%20skr%C3%A1ning"
format: markdown
---
**Skráning**  
Hægt er að skrá tíma og kostnað á þau verk sem til eru fyrir í verkbókhaldi viðkomandi fyrirtækis.   
Einnig geta notendur með réttindin „stjórnendur“ skráð ný verk, sem ekki eru þegar til í dk, til þess að   
skrá tíma og kostnað á. Eiginleikar kerfisins eru þeir sömu hvort sem vefsíða eða app sé notað,   
einungis er örlítil útlitsbreyting á milli skráningarleiða. 

Athugið að mikilvægt er að vera búin að fara vel yfir stillingaratriði inn í dk-inu sjálfu.  Starfsmenn þurfa að vera til þar og búið að stofna taxta fyrir dagvinnu, yfirvinnu og akstur í vöruskrá og tengja við starfsmenn í uppsetningu í verkbókhaldi til að starfsmenn geti notast við tímaskráningu í dkOne kerfinu.


**Skráning á tímum**  
Hægt er að skrá tíma á öll verk sem eru opin í verkbókhaldi. Skráning á dagvinnu og yfirvinnu, klukkutímar og mínútur.

![image](media://3ea5ee4b-db4b-492c-8c33-88c752b738fa)

Velja þarf „SKRÁ“ hnappinn lengst til hægri í yfirlitsmynd kerfisins.  
Lýsing á helstu hlutum „SKRÁ VINNU“ gluggans:

![image](media://61113f4d-9c9e-4743-9638-96801d054546)


Hægt er að skrá kostnað á öll verk sem eru opin

![image](media://7f3e73f3-646f-4d2a-b686-01c168ad9f5b)


Velja þarf „SKRÁ“ hnappinn lengst til hægri í yfirlitsmynd kerfisins. „SKRÁ VINNU“ valmynd kemur upp.   
Verkreitur er fylltur út og svo er farið í liðinn „KOSTNAÐUR“ fyrir neðan. Ýta á „+“ táknið lengst til hægri við kostnaðarlínu í „SKRÁ VINNU“ valmynd.  
Fyrir kostnað þarf að skrá inn vörunúmer og fjöldi eininga.

![image](media://c399d349-3f90-4b82-8519-12b1bf9a1e90)

Skráning á akstri  
Hægt er að skrá akstur á verk. Hægt að velja um fjórar tegundir aksturs: Trip (ferð), KM (kílómetrar),   
OffRoad (Kílómetrar á torfærugjaldi) og KMSpecial (kílómetrar á sérgjaldi).

> Macro (inline-media-image)

  
Velja þarf „SKRÁ“ hnappinn lengst til hægri í yfirlitsmynd kerfisins. „SKRÁ VINNU“ valmynd kemur   
upp. Verkreitur er fylltur út og svo er farið í liðinn „AKSTUR“ fyrir neðan.   
Ýta á „+“ táknið lengst til hægri við aksturslínu í „SKRÁ VINNU“ valmynd. Tegund aksturs skilgreind   
og fjöldi eininga. Athugið að tegundin Trip (ferð) er sjálfgefin í skráningarglugga kerfisins.