---
title: "Sala"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897449/Sala"
format: markdown
---
Þegar notandi skráir sig inn í dkOne fær hann eftirfarandi viðmót.

![image](media://3a36e9bd-4e72-42df-878f-fef470b83a5c)

Undir sölu birtast þær einingar sem fylgja sölukerfinu. Athugið að það sem birtist er mismunandi eftir hvað er í leyfi fyrirtækis og hvernig réttindi notandi hefur í dkOne.

![image](media://ff668f96-0205-49b8-8bbd-cefa3cc20e33)

*Sölureikningar – *Hér er hægt að búa til sölureikninga, ásamt því að þeir sölureikningar sem hafa verið útgefnir eða eru í vinnslu birtast hér.

*Sölupantanir – *Er viðbót við leyfi, ef það er í leyfi viðkomandi fyrirtækis þá birtist þessi eining. Hér er hægt að búa til sölupöntun, og glugginn sýnir allar þær sölupantanir sem hafa verið útgefnar eða eru í vinnslu.

*Sölutilboð – *Er viðbót við leyfi, ef það er í leyfi viðkomandi fyrirtækis þá birtist þessi eining. Hér er hægt að búa til sölutilboð, og glugginn sýnir öll þau sölutilboð sem hafa verið útgefin eða eru í vinnslu.

*Skuldunautar – *Hér er hægt að stofna skuldunaut, ásamt því að sjá lista yfir alla skuldunauta sem hafa verið stofnaðir.

*Vörur – *Hér er hægt að stofna vöru, ásamt því að sjá lista yfir allar vörur sem hafa verið stofnaðar.