---
title: "Sölureikningar"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897451/S%C3%B6lureikningar"
format: markdown
---
Til að stofna sölureikning þá er smellt á** Nýr reikningur**

![image](media://302dae36-fe28-4084-b3c2-5f178a1ae29c)

Forsendur fyrir sölureikninginn eru settar inn.

![image](media://fe2945eb-5fdc-4907-923d-d153d4ef6c2f)


Skuldunautur er valinn úr listanum, hægt er að slá inn kennitölu eða heiti skuldunautar, en kerfið leitar eftir því sem er næst því sem innslegið er.

![image](media://eb8231df-15a5-4a25-a89e-754f7243c4e9)


Sjálfgefið kemur inn dagsetning reiknings, og eindagi út frá greiðsluskilmálum sem settir hafa verið á skuldunautinn.  Hægt er að breyta báðum gildum.

Tegund reiknings kemur sjálfkrafa debit, en hægt er að breyta yfir í kredit, eða skilað.

Verðflokkur er valinn út frá því sem skilgreint er í dk, en hægt er að hafa allt að 3 verðflokka fyrir hverja vöru eða skuldunaut. Hægt er að fastsetja verðflokk á skuldunaut.

Sölumaður er valinn úr lista, en ávallt þarf að stofna sölumenn í dk. Hægt er að sjá notendamyndband um stofnun sölumanns í dk.

Vörur, ýtt er á „+ Bæta við“ til að velja vörur úr lista.  Einungis birtast þær vörur sem búið er að stofna í vöruskrá.  Vörur eru stofnaðar í dk eða dkOne.  Hægt er að leita eftir vörunúmeri eða vörulýsingu. Kerfið leitar eftir því sem er næst því sem innslegið er. Magn er valið með því að slá inn fjölda eða ýta á +/-.  Vara er valin og svo er smellt á „+ Bæta við“ til að velja næstu vöru.

![image](media://f19c0f77-2164-4104-a710-f89ae99fb565)

Þegar allt hefur verið valið á sölureikninginn þá er hægt að sjá samtölur reiknings, upphæð án vsk, vsk flokka eftir því sem við á, og samtals upphæð með vsk.

Undir Viðbótarupplýsingar er hægt að setja inn:

Skýringartexta 1 – texti sem birtist fyrir ofan fyrstu vörulínuna

Skýringartexti 2 – texti sem birtist neðarlega á sölureikningnum

Tilvísun – texti sem birtist í haus reiknings

![image](media://0a4e30cb-cb4d-41bd-8dc3-61c487f6db3d)


Efst í glugganum eru svo valmöguleikar til að setja viðhengi með reikning, eyða reikningi, prenta afhendingarseðil, senda sýnishorn í tölvupósti, skoða sýnishorn af reikningnum, vista drög eða gefa reikning út.> Macro (inline-media-image)



Viðhengi – Ef smellt er á viðhengi þá er smellt á + til að bæta við, og viðhengið svo valið frá þeim stað þar sem það er vistað á tölvu/síma viðkomandi.

Eyða – Ef smellt er á eyða þá eyðist reikningurinn út. Kerfið spyr hvort eigi að eyða þessum sölureikningi því þessa aðgerð er ekki hægt að afturkalla.

Afhendingarseðill – Ef smellt er á afhendingarseðil þá birtist afhendingarseðill til útprentunar eða til að senda með tölvupósti. Til að fá þennan möguleika upp þá þarf að haka við að “virkja afhendingarseðla fyrir reikninga” undir Stillingar – Sala.  Stillingar birtast einungis þeim notendum sem hafa stjórnendaréttindi í dkOne.

Senda í tölvupósti – Ef smellt er á senda í tölvupósti þá er möguleiki að senda sýnishorn af reikningi með tölvupósti, athugið að hér fer bara sýnishorn af reikningi ef þessi aðgerð er valin áður en reikningur er “gefinn út”. Kerfið sækir netfang frá því sem skráð er á skuldunaut, en það er hægt að breyta og skrá annað netfang. Einnig er hægt að skrá fleiri en eitt netfang, með því að ýta á enter eða semikommu á eftir skráningu netfangs.

Sýnishorn – Ef smellt er á sýnishorn þá birtist sýnishorn reiknings eins og það lítur út í útprentun eða viðhengi reiknings þegar sent er með tölvupósti.

Vista drög – Ef smellt er á vista drög þá lokar kerfið reikningnum og geymir hann undir sölureikningar með stöðunni „opinn“ og án reikningsnúmers. Hægt er að þá að opna reikninginn aftur síðar og klára að gefa hann út.

Gefa út – Ef smellt er á gefa út þá er verið að klára reikninginn og hann uppfærist og fær reikningsnúmer. Reikningur sendist með því vali sem skilgreint er á skuldunautnum. Hægt er að láta reikning prentast út, sendast með tölvupósti eða senda rafrænt sem xml reikning (rafrænn reikningur í gegnum skeytamiðlun).  Ef notast er við greiðslur á sölureikningnum þá þarf að velja greiðslumáta til að klára uppfærslu á reikningnum.


Á meðan að reikningur er enn „opinn“ þá birtast allir þessir möguleikar líka í glugganum yfir sölureikninga, í línu reikningsins lengst til hægri. Hægt er að smella á alla valmöguleikana og þá fer af stað sú aðgerð sem valin er án þess að þurfa að opna reikninginn sjálfann.

![image](media://6a3c8bab-55d9-4b7c-81b1-94b8168e8ef2)


Þegar reikningur er útgefinn þá er hann aðgengilegur undir Sölureikningar. Þar birtast allir reikningar, bæði útgefnir og opnir (þ.e. þeir sem eru enn í vinnslu).

Á útgefnum reikningum er líka flýtileið til að komast að valmöguleikunum að Afrita reikning, skoða sýnishorn, bakfæra, setja viðhengi á reikning, prenta afhendingarseðil eða senda í tölvupósti. Sömu möguleikar birtast þegar reikningur er opnaður.

![image](media://52de0069-5922-4149-8665-dc72cdd1d048)


Línan sýnir einnig hvort reikningur hafi verið sendur rafrænt, með tölvupósti eða hvort að krafa hafi verið stofnuð fyrir viðeigandi reikning. Allir þessir möguleikar eru valkvæðir og stýrast út frá stillingum á skuldunautum.

![image](media://2e9e7275-82dd-4454-8bda-a60b7dab3702)

Hægt er að nota leitina efst í sölureikningaglugganum til að leita eftir ákveðnum reikningum. Kerfið leitar eftir því sem slegið er inn. Hægt er að slá inn hluta úr orði eða númer og kerfið leitar eftir því sem næst er.

![image](media://6b103f5d-022e-49ea-8df3-ac05999c3a9d)

Einnig er hægt að leita eftir ákveðinni afmörkun:

Staða - allir reikningar, opnir eða útgefnir, en sjálfgefið er alltaf „allir“.

Sölumaður – allir sölumenn eða val út frá sölumönnum fyrirtækis. Sjálfgefið er alltaf „allir“