---
title: "Sölupantanir"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897453/S%C3%B6lupantanir"
format: markdown
---
Ef sölupantanir er í dk leyfi fyrirtækis þá birtist þær undir Sala.

Stofnun á sölupöntun er nákvæmlega eins og fyrir sölureikning, nema smellt er á „ný pöntun“ til að búa til sölupöntun. 

![image](media://18232bbc-fbda-4fba-bf17-eb2689cdf19d)

Forsendur fyrir sölupöntun eru svo slegnar inn.  Þar sem að innsláttur í sölupöntun er nánast sá sami og fyrir sölureikning þá er hægt að sjá nánari leiðbeiningar undir sölureikningar.

Hver sölupöntun fær sitt pöntunarnúmer við upphaf skráningar.

![image](media://7c3dc37a-c59d-4412-90a6-b7202bdb6af0)

Í sölupöntun þá birtist dálkurinn „staða“.

Valmöguleikar þar eru Í vinnslu, Sent, Hlutaafgreidd, Afgreidd, Í bið, Hætt við. Staða segir til um hver staðan á sölupöntun er.  Í upphafi er í vinnslu, það breytist í „sent“ þegar sölupöntun hefur verið send með tölvupósti.  Þegar sölupöntun er flutt yfir á sölureikning þá er hún afgreidd, en hægt er að hlutaafgreiða og þá merkist hún sem hlutaafgreidd ef einhverjar vörur á pöntuninni eru ekki afgreiddar strax. Hægt er að merkja sölupöntun í bið, eða hætt við ef afgreiðsla á ekki að eiga sér stað.  Það er þá gert handvirkt í pöntuninni. Aðrar stöður gerast sjálfkrafa við fyrrnefndar aðgerðir.

![image](media://4d44b49c-373d-45db-988c-f85d0843e0fc)

Staða á sölupöntun kemur fram í listanum yfir allar sölupantanir

![image](media://3413ab16-03cd-45a0-9336-732c188460ca)

Í hverri línu í listanum yfir sölupöntun birtast tákn hægra megin sem eru flýtileiðir í viðkomandi aðgerðir, afrita, sýnishorn, eyða

Afrita – Hægt er að afrita viðkomandi sölupöntun, þá stofnast ný sölupöntun með sömu forsendum, en hægt er að breyta skuldunaut og viðeigandi upplýsingum.

Sýnishorn – Hægt er að skoða sýnishorn af sölupöntun, og senda á prentara eða yfir á tölvupóst.

Eyða – Þessi aðgerð eyðir sölupöntuninni. Þessa aðgerð er ekki hægt að afturkalla ef sölupöntun er eytt.

Ef sölupöntun er opnuð þá birtist valmöguleikinn sýnishorn, sem birtir sölupöntun á skjá og býður upp á valmöguleikann að prenta eða senda yfir á tölvupóst.

![image](media://4429b596-0ae4-4a2e-90d2-a1c94b6654d2)

![image](media://0d14b5f7-e751-40bf-a4b6-936238de4000)

Hægt er að nota leitina efst í sölupantanaglugganum til að leita eftir ákveðnum pöntunum. Kerfið leitar eftir því sem slegið er inn. Hægt er að slá inn hluta úr orði eða númer og kerfið leitar eftir því sem næst er.

![image](media://4506a6c4-119a-407c-b66d-9c4257b4db21)

Einnig er hægt að leita eftir ákveðinni afmörkun:

Staða – allar stöður sölupantana, í vinnslu, sent, hlutaafgreitt, afgreitt, í bið, hætti við. Sjálfgefið er alltaf „allar“.

Sölumaður – allir sölumenn eða val út frá sölumönnum fyrirtækis. Sjálfgefið er alltaf „allir“