---
title: "Sölutilboð"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897455/S%C3%B6lutilbo%C3%B0"
format: markdown
---
Ef sölutilboð er í dk leyfi fyrirtækis þá birtist það undir Sala.

Stofnun á sölutilboði er nákvæmlega eins og fyrir sölureikning, nema smellt er á „nýtt tilboð“ til að búa til sölutilboð. 

![image](media://549a05e9-7df5-434b-9f0e-d3619b166b87)

Forsendur fyrir sölutilboð eru svo slegnar inn.  Þar sem að innsláttur í sölutilboð er nánast sá sami og fyrir sölureikning þá er hægt að sjá nánari leiðbeiningar undir sölureikningar.

Hvert sölutilboð fær sitt pöntunarnúmer við upphaf skráningar.

![image](media://11c796ba-2fe3-4e22-a970-355169baf99d)

Í sölutilboði, eins og í sölupöntunum, þá birtist dálkurinn „staða“.

Valmöguleikar þar eru Í vinnslu, Sent, Hlutaafgreitt, Afgreitt, Í bið, Hætt við. Staða segir til um hver staðan á sölutilboði er.  Í upphafi er tilboðið „í vinnslu“, það breytist í „sent“ þegar sölutilboð hefur verið sent með tölvupósti.  Þegar sölutilboð er flutt yfir á sölureikning þá er það „afgreitt“. Hægt er að merkja sölutilboð „í bið“, „eða hætt“ við ef afgreiðsla á ekki að eiga sér stað.  Það er þá gert handvirkt í tilboðinu. Aðrar stöður gerast sjálfkrafa við fyrrnefndar aðgerðir.

![image](media://7c467843-bb03-4bd5-98ce-467f6a622a5b)

Staða á sölutilboði kemur fram í listanum yfir öll sölutilboð.

![image](media://185a5aeb-f7cd-481f-b46e-0bb28e8ce9da)

Í hverri línu í listanum yfir sölutilboð birtast tákn hægra megin sem eru flýtileiðir í viðkomandi aðgerðir, afrita, sýnishorn, eyða

![image](media://5f35b163-bfbd-4a5d-8fca-f2fadec6a630)

Afrita – Hægt er að afrita viðkomandi sölutilboð, þá stofnast nýtt tilboð með sömu forsendum, en hægt er að breyta skuldunaut og viðeigandi upplýsingum.

Sýnishorn – Hægt er að skoða sýnishorn af sölutilboði, og senda á prentara eða yfir á tölvupóst.

Eyða – Þessi aðgerð eyðir sölutilboðinu. Þessa aðgerð er ekki hægt að afturkalla ef tilboði er eytt.

Ef sölutilboð er opnað þá birtast sömu valmöguleikar og í flýtileið ásamt því að geta flutt sölutilboð yfir á pöntun eða reikning.

![image](media://9f09e2eb-c3eb-4ca1-9b3a-0a71c597adbf)

Vista – Ávallt þarf að smella á vista til að geyma allar breytingar sem gætu hafa átt sér stað.

Pöntun – Með því að smella á pöntun er hægt að flytja sölutilboð yfir á sölupöntun. Sölupöntun stofnast og merkist „í vinnslu“

Reikningur – Með því að smella á reikningur er hægt að flytja sölutilboð yfir á sölureikning. Sölureikningur stofnast og merkist sem „opinn“


Hægt er að nota leitina efst í sölutilboðsglugganum til að leita eftir ákveðnum tilboðum. Kerfið leitar eftir því sem slegið er inn. Hægt er að slá inn hluta úr orði eða númer og kerfið leitar eftir því sem næst er.

![image](media://a86d70b1-40cc-4bdd-820b-711913547cd9)

Einnig er hægt að leita eftir ákveðinni afmörkun:

Staða – allar stöður sölutilboða, í vinnslu, sent, hlutaafgreitt, afgreitt, í bið, hætti við. Sjálfgefið er alltaf „allar“.

Sölumaður – allir sölumenn eða val út frá sölumönnum fyrirtækis. Sjálfgefið er alltaf „allir“