---
title: "Skuldunautar"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897457/Skuldunautar"
format: markdown
---
Í skuldunautum er listi yfir alla skuldunauta sem hafa verið stofnaðir.

![image](media://89ecea88-024e-4cf4-9aef-bcbe317eea88)

Hægt er að stofna skuldunauta inn í dk eða í dkOne.  Kerfið sér um að birta á báðum stöðum, sama hvoru megin þeir eru stofnaðir.  Nýr skuldunautur er stofnaður í dkOne með því að smella á “Nýr skuldunautur”

![image](media://7fb84d3c-b852-49e4-9495-ade3abedf5e8)

Viðeigandi upplýsingar eru þá settar inn á spjaldið sem opnast, en hafa ber í huga að mun fleiri valmöguleikar eru í dk-inu sjálfu heldur en í dkOne og ekki allar aðgerðir í boði í dkOne sem hægt er að gera í dk.

Aðgerð er kláruð með því að smella á hnappinn “vista” efst í hægra horninu. Þá bætist nýji skuldunauturinn við í heildarlistann.

![image](media://549972fe-1c97-41cb-8621-f12b8fc9bcc3)

Hægt er að leita í skuldunautalistanum, og ef smellt er á viðeigandi skuldunaut þá birtast stofnupplýsingar hans, og einnig er hægt að sjá hreyfingar, reikninga, pantanir og tilboð ef við á. 

Ef unnið er með verkbókhald þá birtast einnig upplýsingar um verk og tengiliði.

![image](media://8bfeaf25-9dfb-46e8-8b87-0344b4cf49d0)

Möguleiki er að breyta skuldunautaupplýsingum ef við á, en muna þarf að smella á “vista” ef upplýsingum er breytt.

Í flipunum fyrir hreyfingar, reikninga, pantanir og tilboð er hægt að slá inn dagsetningartímabil, birta hreyfingalista fyrir ákveðið tímabil og senda t.d. með tölvupósti.

![image](media://58ce21d7-d4c8-4a45-827a-8f9a2703ee48)

Hægt er að velja ákveðinn reikning/pöntun/tilboð, birta á skjá og senda með pdf eða sem viðhengi í tölvupósti.

![image](media://100c83ea-8181-44b9-a22d-0cca1e1ed63e)