---
title: "Vörur"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897459/V%C3%B6rur"
format: markdown
---
Í vörum er að finna lista yfir allar vörur sem hafa verið stofnaðar.

![image](media://1acc7b20-901e-4779-b3cc-9aad144a3b2c)


Hægt er að stofna vörur inn í dk eða í dkOne.  Kerfið sér um að birta á báðum stöðum, sama hvoru megin þær eru stofnaðar.  Nýjar vörur eru stofnaðar í dkOne með því að smella á “Ný vara”

![image](media://980ba298-3dfa-4807-8f71-b63b727609b9)


Viðeigandi upplýsingar eru þá settar inn á spjaldið sem opnast, en hafa ber í huga að mun fleiri valmöguleikar eru í dk-inu sjálfu heldur en í dkOne og ekki allar aðgerðir í boði í dkOne sem hægt er að gera í dk.

Aðgerð er kláruð með því að smella á hnappinn “vista” efst í hægra horninu. Þá bætist nýja varan við í heildarlistann.

![image](media://963ed8aa-b556-4825-80fd-5941d85cbcaa)

Hægt er að leita í vöruskránni, og ef smellt er á viðeigandi vöru þá birtast stofnupplýsingar þess. Möguleiki er að breyta vöruupplýsingum ef við á, en muna þarf að smella á “vista” ef upplýsingum er breytt.

> Macro (inline-media-image)

> Macro (inline-media-image)



 Á línu hvers vörunúmers er flýtileið til að sjá magn í birgðageymslu og eyða vöru.

![image](media://396ce64c-f728-4ffc-b7ca-c43ee7594e13)

Ef vöruspjald er opnað, birtist möguleikinn að eyða vöru, eða vista breytingar.

![image](media://b510c16d-43b7-4296-b263-01ce41969009)