---
title: "Kostnaður"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897461/Kostna%C3%B0ur"
format: markdown
---
Þegar notandi skráir sig inn í dkOne fær hann eftirfarandi viðmót.

![image](media://8770ee2c-00ca-4178-8988-a93671d0a6e8)

Undir kostnað birtast þær einingar sem fylgja kostnaðar- og samþykktarkerfinu. Athugið að það sem birtist er mismunandi eftir hvað er í leyfi fyrirtækis og hvernig réttindi notandi hefur í dkOne.

![image](media://d31c52e0-fa61-4d26-8365-2f126606d6a8)

*Mínar samþykktir – *Hér fer samþykkjandi til að finna þá reikninga sem búið er að merkja á hann til samþykktar. Notandi vinnur í þessum lista til að sjá reikninga og samþykkja/hafna reikningum. .

*Reikningar – *Hér getur notandi fundið alla reikninga sem skráðir hafa verið. Það er notendastýring hverjir geta séð alla reikninga

*Lánardrottnar – *Hér er hægt að stofna lánardrottna, ásamt því að sjá lista yfir alla lánardrottna sem hafa verið stofnaður. 

*Innlestur skjala – *Hér er hægt að taka mynd af skjali og senda beint inn í skrá reikninga í dk lánardrottnakerfið til að reikningur stofnist með viðhengi.