---
title: "Mínar samþykktir"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897463/M%C3%ADnar%20sam%C3%BEykktir"
format: markdown
---
Til að skoða reikninga sem eru til samþykktar á þessum tiltekna starfsmanni er farið í   
Mínar samþykktir

![image](media://a169e5dc-d688-4a43-9715-a1a7ce7bf6a9)

  
Hægt er að stilla efst uppi í þessum glugga hvort að viðkomandi sjái þar Ósamþykkta,   
Samþykkta eða alla Reikninga.

Reikningar sem eru ósamþykktir birtast í þessum glugga.

![image](media://b8a2b000-32f3-4249-87f7-b56b325d9a62)

Samþykkjandi getur samþykkt reikning í þessu vali með því að smella á þumalinn lengst til hægri. Þar er einnig hægt að sjá og birta þau viðhengi sem fylgja reikningnum.  Samþykkjandi getur einnig bætt við viðhengi ef þörf er á.

![image](media://bc4a82ef-cac6-4b22-b5b0-ebc94567fddf)

Til að skoða nánari upplýsingar á reikningnum er hægt að smella á línuna sjálfa, þá opnast upplýsingar um reikninginn.  Það fer eftir stillingum í kerfinu hvaða réttindi notendur hafa og mega breyta/eiga við á reikningnum. 

![image](media://a3a09663-b109-4978-a510-7c69219d4029)

Samþykkjendur geta fært reikning yfir á annan samþykkjanda. Þá er smellt á nafn samþykkjanda og þá er nafnið tekið út og nafn þess starfsmanns sett inn sem á að vera samþykkjandi reikningsins.

![image](media://9d105717-d9f4-431c-9fe2-6e728f3ebb07)

Efst á síðunni þarf að vista allar breytingar, þar er líka hægt að skoða viðhengi og samþykkja reikning.

![image](media://fa0e08d8-c5ce-4c27-8c50-bffc63fd70ee)

Um leið og reikningur hefur verið samþykktur þá merkist hann sem samþykktur í dk kerfinu sjálfu.  Þá er hægt að klára bókun á reikningnum þar.