---
title: "Reikningar"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897465/Reikningar"
format: markdown
---
Í valmöguleikanum fyrir reikninga er hægt að sjá alla þá reikninga sem eru í lánardrottnakerfinu í dk, sem   
hafa verið skráðir á þennan samþykkjanda. Þar er hægt að sjá yfirsýn samþykktar- og bókunarstöðu   
reikninganna. Þeir samþykkjendur sem hafa samþykkt reikningana eru með grænu tákni, þeir sem hafa   
ekki samþykkt reikningana eru ekki með neinu tákni og þeir sem hafa hafnað reikningi koma með rauðu   
tákni.

Það er stillingaratriði hvort notendur mega sjá alla reikninga eða bara sína samþykktarreikninga.

![image](media://38d2afbc-c639-4940-9d9a-26af12cdcf7a)

Þegar reikningur er opnaður færðu eftirfarandi viðmót. Hægt er að skoða upplýsingar um reikningslínurnar   
sjálfar sem og hausupplýsingar reikningsins.Hér er hægt að skoða viðhengi reikningsins og einnig er hægt að samþykkja reikninginn í þessu vali.

![image](media://154e8ab9-45d2-4f65-a76b-0049af6a05f0)