---
title: "Verk"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897478/Verk"
format: markdown
---
**Skráning á nýju verki**  
Hægt er að nýskrá verk sem svo er notað til að skrá vinnu og akstur. Ekki er hægt að tengja greiðanda við   
verk í vefviðmóti eða appi. Það þarf að fara í verkbókhaldshluta dk til að tengja greiðanda, umsjónarmann,   
tegund verks ofl.


**Réttindi notanda**  
Til að notandi geti búið til verk þarf hlutverk hans að vera stillt sem „Stjórnandi“, sjá nánar undir Stillingar.   
Hér má sjá upplýsingaspjald verks í dk verkbókhaldi þar sem hægt er að tengja greiðanda við verk ofl.

![image](media://e6fc72de-3910-413a-9587-d38b0e531ee7)


**Stofna verk (skráning á nýju verki)**  
Ef þarf að stofna verk til að skrá tíma á þarf að fara í vinstri valmynd kerfisins, velja „Vinna“ í þeirri valmynd   
og þar undir þarf að velja „Verk“. Smella þarf á græna hnappinn hægra megin: „Bæta við“.

![image](media://10e88dde-e215-4114-8c54-292ed302a89c)

Næst þarf að slá inn nafn verks og velja „VISTA“.   
Verkinu er úthlutað númeri og fær þá stöðuna „Í vinnslu“  
Nú er hægt að byrja að skrá tíma og akstur á verkið sem stofnað hefur verið.

Ef skrá þarf ítarlegri upplýsingar heldur en er í boði í dkOne þá þarf að klára þá uppsetningu inn í dk kerfinu sjálfu. 

![image](media://1a075328-3992-4026-8ab3-694e990ed76d)