---
title: "Sala -"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897498/Sala%20-"
format: markdown
---
Að fá upp raun gögn fyrir sölutölur fyrirtækis getur skipt sköpum í daglegum rekstri.


Yfirlit – sýnir myndrænt yfirlit yfir skuldunauta eftir sölutekjum, vörur eftir sölutekjum, skuldunautaflokka eftir sölutekjum, vöruflokka eftir sölutekjum, sölumenn eftir sölutekjum og svæði eftir sölutekjum.

![image](media://35143c77-b92a-47b4-b422-f387183e4bd4)


Söluskýrsla – sýnir tölulegar og myndrænar upplýsingar um helstu sölutölur, magn, fjölda reikninga, meðalupphæð og fjölda skuldunauta sem dæmi.

![image](media://a21ecd36-c2e5-4726-9ff8-83f50245f168)


Skuldunautar – skýrslan sýnir helstu skuldunautana eftir söluupphæð. Hægt er að leita eftir ákveðnum skuldunaut, og skoða forsendur út frá sölutekjum, fjölda reikninga, meðal upphæð og framlegð.

![image](media://8e4e333e-b3cb-48db-9e56-d7d40cea6089)

![image](media://025b2e6a-db6f-4c29-b136-cbf13c91b46f)

![image](media://68bc3358-d905-4764-8467-d0c2ea1b2fb4)

> Macro (inline-media-image)

+


Vörur – skýrslan sýnir helstu vörur eftir söluupphæð. Hægt er að leita eftir ákveðinni vöru, og skoða forsendur út frá sölutekjum, framlegð, magni, og meðal einingarverði.

![image](media://ba5d3bfb-d0a4-4e6b-91c6-7c2e7ae49993)

![image](media://d825a210-9c52-4c2d-9790-a566c771810f)

![image](media://53a0c351-9c7a-4c4a-879b-6417f8c308e9)

![image](media://e3166ab3-6355-47b1-9629-2602f3fa9d70)


Þróun lykiltalna - sýnir á myndrænan hátt þróun á sölu án vsk, uppsafnaðar sölutekjur án  vsk, fjölda reikninga uppsafnað, fjölda nýrra viðskiptavina uppsafnað, fjölda pantana uppsafnað og fjölda tilboða uppsafnað.

![image](media://43523e82-f90f-48fa-a847-a4da57f8253a)


Í öllum einingum sem búið er að nefna hér að ofan er hægt að nota mismunandi forsendur fyrir dagsetningartímabil.


Efst á mælaborðinu er hægt að sjá það tímabil sem valið er.  Sjálfkrafa kemur núverandi mánuður.

![image](media://773eb2ff-015e-4612-9709-dcb7ef8aaaea)


Ef smellt er á píluna niður þá koma sjálfgefin tímabil sem hægt er að velja, s.s. þessi vika, síðasta vika, þessi mánuður, síðasta mánuður, þessi ársfjórðungur, síðasti ársfjórðungur, þetta ár, síðasta ár eða árið til dagsins í dag.

![image](media://5d50acf6-0852-48e1-a56f-cd3b60211883)


Ef smellt er á stillingarhnappinn kemur val um að „bera saman tímabil“, „sjá síðustu...“ eða „sérsniðið tímabil“.

![image](media://ab856cfc-db65-4819-aaa5-9d425b7b5907)

Bera saman tímabil – hér er hægt að setja viðmið og bera saman við önnur tímabil. Hægt er að smella á plúsinn á auða blaðinu og bæta þá við fleiri samanburðum, t.d. fleiri árum. 

Hægt er að bæta við síu, t.d. til að skoða út frá ákveðinni deild,  og velja að skoða forsendur út frá ári, ársfjórðungi eða mánuðum.

Öll gögn eru raungögn.


![image](media://d64f6a94-7b87-4bce-af51-33e79546fd65)

Þegar forsendur hafa verið valdar þá birtast allar mælingar út frá völdum forsendum


![image](media://9153fd0b-26ab-4e4a-bb8d-641ad38d5740)


Sjá síðustu... – hér er hægt að sjá þróun síðustu ára.  Notandi velur hversu langt timabil á að velja, en tímabilið getur verið bókhaldstímabil, ár eða mánuðir.


![image](media://795f6ad6-bf23-4926-b5dc-9f3e5756c1c2)

![image](media://970ff500-2b5e-44f2-843f-2a9802e68a23)

Þegar forsendur hafa verið valdar þá birtist mælaborðið út frá þeim forsendum.

![image](media://89880686-c167-44b6-88ab-c66624de91b9)


Sérsniðið tímabil er sjálfgefið, en þá velur notandi þá dagsetningu sem hann vill birta.

![image](media://9121ba0c-1b76-48af-b01c-84d8748ba5b1)