---
title: "Stillingar fyrir Vinnu"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897502/Stillingar%20fyrir%20Vinnu"
format: markdown
---
**Uppsetning á aðgangi innan fyrirtækis ****(notandi)**  
Til að setja upp fleiri aðganga að verkappinu þarf umsækjandi að fara í valmynd kerfisins. Þar undir er   
farið í: Stillingar/Meðlimir Velja þar „BJÓÐA INN DK NOTENDUM“ í hægri valmynd.

Sjá hér nánari upplýsingar um hvernig starfsmanni er boðið í dkOne kerfið: [Að bjóða inn notendum í dkOne - dkONE - dk Documents](https://docs.dk.is/pages/viewpage.action?pageId=70025223)


**Stillingar fyrir verkskráningu**

Er að finna undir Stillingar - Vinna

Við mælum alltaf með því að sá aðili sem hefur stjórnenda aðgang að dkOne fyrir yfir stillingar á viðeigandi einingu.

Margir möguleikar eru í boði varðandi stillingar á verkskráningu, en lang flestir þeirra eru virkjaðir sjálfkrafa þegar kerfið er sett upp. En það er alltaf gott að vita af möguleikum sem eru í boði í kerfinu en stillingarnar stýra því hvað unnið er með í tímaskráningu.

Hugið að því að þetta er léttlausn og því ekki allir möguleikar í boði í dkOne og er hægt að gera í dk kerfinu sjálfu.  Mörg atriði þarf að stilla í dk kerfinu til að dkOne vinnuskráningin virki, eins og að setja dagvinnu, yfirvinnu- og akstustaxta á starfsmenn. Ýmis atriði tengd reikningagerð og margt fleira.

Þeir aðilar sem hafa stjórnendaréttindi í dkOne ættu að fara vel yfir þá valkosti og stillingaratriði sem í boði eru fyrir sitt kerfi.

![image](media://5a2a9bb3-d50a-45ae-ab63-7b9c7e97486d)