---
title: "Stillingar fyrir Sölu"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897504/Stillingar%20fyrir%20S%C3%B6lu"
format: markdown
---
Stillingar fyrir sölu er að finna undir Stillingar – Sala

![image](media://862be02e-3d12-42e1-bb30-7936309f92b6)

Við mælum alltaf með því að sá aðili sem hefur stjórnenda aðgang að dkOne fyrir yfir stillingar á viðeigandi einingu.

Margir möguleikar eru í boði varðandi stillingar á sölukerfinu, en lang flestir þeirra eru virkjaðir sjálfkrafa þegar kerfið er sett upp. En það er alltaf gott að vita af möguleikum sem eru í boði í kerfinu en stillingarnar stýra því hvað unnið er með í sölukerfinu.

Hugið að því að þetta er léttlausn og því ekki allir möguleikar í boði í dkOne og er hægt að gera í dk kerfinu sjálfu.  Ýmis atriði þarf að gera í dk kerfinu sjálfu til að dkOne sölureikningakerfið virki, eins og að stofna starfsmenn og sölumenn umsýsla með kröfur o.fl.

![image](media://06ae6ef7-be3d-4208-9b61-95bd1e5afaa1)

Reikningar

Þar er hakað við að virkja *sölumenn*, *afhendingarseðla* og *greiðslur á sölureikningum*.

Notendastýring á því hverjir geta breytt *eindaga reikninga*, og *einingarverði á reikningslínu*

Skuldunautar

Þar er hakað við að sýna *samheiti skuldunauta*, *póstnúmer*, *land*, og *heimilsfang 2,3,4*.  Þetta eru allt valmöguleikar á því hvað birtist á sölureikningnum sjálfum.

Einkennissvæði skuldunauta er sjálfkrafa valið sem *kennitala*, en getur verið *númer* eða *kennitala og númer*.

Vörur

Hér er hægt að haka við að sýna *vöruleitarnúmer*, *birgðageymslur*, *einingar* og *sýna magn á lager*.

Annað

Hér er hakað við að virkja *sölutilboð*, *sölupantanir*, *vörumóttakendur*, *strikamerki*, *samningsbundin verð og afslætti*, *einingarverð með vsk* og að hafa *samtölu reikningslínu Nettó*.

Hægt er að skilgreina verðflokka, en hægt er að nota allt að 3 verð per vöru.

Að lokum er hægt að stýra aðgreini fyrir þúsundir í tölum og aukastafi (kommur og puncta)


Hægt er að eiga við útlit sölureikninga, pantana og tilboða. Notandi getur sett inn mynd fyrir logo fyrirtækis sem birtist á sölureikningi, sölupöntun og sölutilboði.  Einnig er hægt vinna með útlit sölureiknings, tilboðs eða pöntunar undir stilla prentun.

![image](media://25b9df61-fade-4b69-9775-6a64984330a0)

Þjónustudeild dk hugbúnaðar aðstoðar með breytingar á útliti sölureikninga, sölutilboð og sölupantana.  Einnig er þjónustdeildin til aðstoðar með stillingar og aðra aðstoð varðandi dkOne.