---
title: "Stillingar fyrir Kostnað"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897506/Stillingar%20fyrir%20Kostna%C3%B0"
format: markdown
---
Stillingar fyrir kostnað er að finna undir Stillingar – Kostnaður

![image](media://08fa19d8-9d4c-448a-b1b9-fdeaa4c21688)

Við mælum alltaf með því að sá aðili sem hefur stjórnenda aðgang að dkOne fari yfir stillingar á viðeigandi einingu.

Margir möguleikar eru í boði varðandi stillingar á kostnaðarkerfinu, en lang flestir þeirra eru virkjaðir sjálfkrafa þegar kerfið er sett upp. En það er alltaf gott að vita af möguleikum sem eru í boði í kerfinu en stillingarnar stýra því hvað unnið er með í kostnaðarkerfinu.

Hugið að því að þetta er léttlausn og því ekki allir möguleikar í boði í dkOne og er hægt að gera í dk kerfinu sjálfu.  Ýmis atriði þarf að gera í dk kerfinu sjálfu til að dkOne kostnaðarkerfið virki, eins og uppsetningu á samþykktarkerfi, innlestur kostnaðarreikninga, bókun reikninga o.fl.

![image](media://0acf0869-eb0f-45b3-b8cc-d65b7dcc9baa)

Reikningar

Þar er hakað við að *skrá skýringu þegar reikningur er samþykktur *og* skrá skýringu þegar reikningi er hafnað*. 


Lánardrottnar

Þar er hakað við að sýna heimilsfang 2,3,4, samþykktarkerfi og innlestur skjala. Heimilsfang eru valmöguleikar á því hvað birtist á reikningnum sjálfum, samþykktarkerfi og innlestur skjala eru viðbót við dk leyfið og birtist ef það er virkt.

Næstu liðir eru réttindastýring á því hvað notendur mega sjá og gera í kerfinu. 


Þjónustudeild dk hugbúnaðar aðstoðar með stillingar og frekari aðstoð varðandi dkOne.