---
title: "Innlestur skjala"
canonical: "https://docs.dk.is/space/dk1/7897526/Innlestur%20skjala"
format: markdown
---
Hægt er að vera með eininguna Innlestur Skjala í dkOne.

Þá er hægt að taka mynd af reikningi eða kvittun og senda inn í dk. 

Innlestur skjala tengist beint við innlestur kostnaðarreikninga í dk kerfinu svo að skjöl birtast í lánardrottnakerfinu um leið og búið er að taka mynd í dkOne appinu. Notandi þarf að hafa "innlestur kostnaðarreikninga" virkt í dk leyfinu.

Hægt er að lesa inn skjal út frá tölvunni, eða taka mynd í síma í gegnum dkOne appið.

![image](media://b7740e37-6254-4f00-a5cf-49c8ede97724)

Þegar búið er að lesa inn skjal/taka mynd þá er staðan í vinnslu þar til búið er að skrá reikning inn í dk, en   
þá breytist staðan í Tilbúið.

Listinn heldur utan um öll skjöl sem hafa verið send til dk. Ekkert frekar er hægt að vinna með skjölin hér í   
þessum glugga.

![image](media://aa21ef54-a7f2-4fef-8ef2-6b53edaf6e04)


Sjá hér leiðbeiningar um virkni innlestur kostnaðarreikninga inn í skrá reikninga í lánardrottnakerfinu í dk.